Málþing - Stuðningur við börn á flótta í íslensku skólakerfi. Í tilefni af útgáfu fræðslunnar fór fram mikilvægt málþing um börn á flótta og íslenskt skólakerfi þar sem reynslumiklir aðilar tóku til máls.

UNICEF á Íslandi, Rauði krossinn á Íslandi og Barna- og fjölskyldustofa (BOFS) hafa í samstarfi gefið út rafrænt fræðsluefni um börn á flótta. Fræðslan er aðgengileg á vefsíðu BOFS skólans hér

4 sep. 2024

UNICEF á Íslandi, Rauði krossinn á Íslandi og Barna- og fjölskyldustofa (BOFS) hafa í samstarfi gefið út rafrænt fræðsluefni um börn á flótta. Fræðslan er hugsuð fyrir kennara og starfsfólk skóla á öllum skólastigum barna og er ætlað að stuðla að betri skilningi á lífi barna á flótta, m.a. réttindum þeirra, áhrif áfalla á líðan og hegðun, og hvernig ný lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna geta stutt við börn sem hingað koma á flótta.

Fræðsluna má nálgast hér

Skortur á stuðningi annað áfall


Í tilefni af útgáfu fræðslunnar fór fram mikilvægt málþing um börn á flótta og íslenskt skólakerfi þar sem reynslumiklir aðilar tóku til máls. Þar sagði Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri GeoSilica, reynslusögu sína af íslensku skólakerfi en hún kom hingað til lands frá Palestínu 16 ára gömul og kláraði hér háskólanám. Af sögu hennar megum við draga mikinn lærdóm. Þrautseigja hennar og seigla komu henni þangað sem hún er í dag en hún mætti mörgum hindrunum, og upplifði sig einangraða og utanveltu ekki síst vegna mikillar áherslu á að hún kláraði samskonar íslenskunám og íslenskir nemendur. Það var ekki fyrr en með tilkomu Keilis háskólabrúar að litið var til hennar styrkleika og móðurmál hennar, arabíska, var álitinn styrkleiki og metinn sem slíkur. Það tók hana 10 ár að klára framhaldsskólann og skortur á stuðningi og skilningi reyndist mikil vonbrigði og í raun annað áfall ofan í þau áföll sem því fylgja því að búa í stríðshrjáðu landi.

Mikilvægt að veita mjúka lendingu

Þá sögðu Dagbjört Ásbjörnsdóttir og Saga Stephensen, verkefnastjórar fjölmenningar á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, frá Skóla- og fjölskyldumiðstöð, farsælu úrræði fyrir börn á flótta sem komið hefur verið á laggirnar í Reykjavík; fyrir úkraínsk börn og fjölskylur þeirra árið 2022 og svo palestínsk börn og fjölskyldur þeirra árið 2024. Áhersla er lögð á að bjóða þessum hópum að vera saman og með foreldrum sínum þar sem þeim er kennt á íslenskt samfélag þar sem tekið er tillit til getu og úthalds hópsins. Þannig er markmiðið að skapa ljúfa og örugga byrjun fyrir barnafjölskyldur í nýju samfélagi. Vonir standa til að önnur sveitarfélög geti boðið upp á svipuð úrræði.

Mismunun til staðar gagnvart börnum án kennitölu

Í pallborðsumræðum sagði Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri farsældarsviðs BOFS, frá því hvernig farsældinni er ætlað að taka utan um börn á flótta en það er mismunandi hversu langt sveitarfélögin eru komin í að innleiða farsældina. Það er í það minnsta alveg ljóst að börn á flótta eiga sama rétt og önnur börn á stuðningi samkvæmt farsældarmódelinu. Þá sagði Jóna Dís Bragadóttir, skólastjóri Tækniskólans, frá því hvernig Tækniskólinn tekur vel á móti nemendum með flótta bakgrunn en þar er það ekki krafa að nemendur séu með íslenska kennitölu. Þá sagði Alda Áskelsdóttir, sérfræðingur hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, frá reynslu sinni af því að vinna með börnum á flótta inni í grunnskólanum. Hún minnti á mikilvægi þess að byggja upp traust og að þeir sem vinni með börnum með þennan bakgrunn, setji sig inn í hugarheim barnanna til að skilja hegðun þeirra. Hún sagði áhrifamikla sögu af dreng sem hún kenndi sem flýði alltaf í undirgöng í frímínútum því hann óttaðist sprengjuregn undir berum himni.

Alda benti einnig á gagnlegan vef þar sem verkfæri er að finna fyrir kennara: https://mml.reykjavik.is/2024/08/14/born-med-rofna-skolagongu/

Í umræðum kom fram að margt hefur breyst frá því árið 1996 þegar Fida hóf hér nám framhaldsskóla en þó er ennþá margt í hennar sögu sem á því miður ennþá við. Þá var bent á þá mismunun sem viðgengst hér á landi þar sem börn sem eru án kennitölu fá ekki sömu þjónustu og önnur börn, t.d. varðandi leikskólapláss, þátttöku í frístundastarfi og fleira. Einnig kom fram að sérstaklega þarf að huga að þeim hópi sem hefur náð 18 ára aldri en þarf enn stuðning til þess að klára sitt framhaldsskólanám.

Mikilvægt er að halda áfram umræðunni um þennan aðkallandi málaflokk og vinna saman að lausnum.



Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-17

05. sep. 2024 : Við erum að flytja vefinn okkar

Við erum smám saman að flytja vefinn okkar yfir á island.is og þar er að finna það helsta sem er á döfinni hjá okkur og allar nýjustu upplýsingar.  Fara á nýjan vef.

27. ágú. 2024 : Börn á Flótta – Málþing

UNICEF á Íslandi, Rauði krossinn á Íslandi og Barna- og fjölskyldustofa (BOFS) hafa í samstarfi unnið fræðslumyndband um börn á flótta.

Fræðsluefnið um börn á flótta. Smellið hér til að nálgast fræðsluna

Lesa meira

15. maí 2024 : Stöðuskýrsla til ráðherra á þriðja ári innleiðingar

Frá því að lögin um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna voru samþykkt hefur markvisst verið unnið að innleiðingu þeirra á vegum ríkis og sveitarfélaga um allt land.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica