Tilkynningum fjölgar á fyrstu 3 mánuðum ársins, mest vegna áhættuhegðunar barna

Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á fyrstu þremur mánuðum áranna 2022 - 2024

18 júl. 2024

https://www.bofs.is/tolfraedi-og-utgefid-efni/frettir/frettasafn/tilkynningum-fjolgar-a-fyrstu-3-manudum-arsins-mest-vegna-ahaettuhegdunarTilkynningum til barnaverndarþjónusta fjölgaði um 16,7% á fyrstu þremur mánuðum ársins 2024 miðað við sama tímabil árið á undan. Tilkynningum fjölgaði í öllum landshlutum, mest í Reykjavík eða um 20,3%.

Flestar tilkynningar á fyrstu þremur mánuðum ársins 2024 voru vegna vanrækslu líkt og árin á undan eða 40,4% allra tilkynninga. Næst flestar tilkynningar voru vegna áhættuhegðunar barns eða 33,9% sem er töluvert hærra hlutfall en árin áður. Hlutfall tilkynninga vegna ofbeldis voru 23,2%. Hlutfall tilkynninga þar sem að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu var um 0,5% á fyrstu þremur mánuðum ársins 2024.

Tilkynningum vegna vanrækslu varðandi umsjón og eftirlit fjölgaði um 10,9% á fyrstu þremur mánuðum ársins 2024 sé miðað við sama tímabil árið 2023 en slíkum tilkynningum hefur farið fjölgandi undanfarin ár. Í 34,1% tilvika bárust slíkar tilkynningar vegna áfengis- og/eða fíkniefnaneyslu foreldris, sem er örlítið lægra hlutfall en árin áður.

Tilkynningum vegna líkamlegs og tilfinningalegs ofbeldis hefur fjölgað ár frá ári, þegar bornar eru saman tilkynningar á fyrstu þremur mánuðum áranna. Til að mynda fjölgaði tilkynningum vegna líkamlegs ofbeldis á fyrstu þremur mánuðum 2024 um 34,9% miðað við sama tímabil árið áður en 71,3% ef miðað er við 2022.

Mikil aukning hefur orðið á tilkynningum vegna áhættuhegðunar á fyrsta fjórðungi ársins 2024 ef miðað er við sama tímabil árin á undan. Almennt fjölgaði tilkynningum í flokknum áhættuhegðun um 31,8% auk þess sem tilkynningum hefur fjölgað í öllum undirflokkum. Ber þar helst að nefna tilkynningum vegna neyslu barns á vímuefnum sem slíkum tilkynningum hefur fjölgað um 118,9% á milli ára.

Þá hefur einnig verið mikil aukning á tilkynningum vegna þess að barn stefnir eigin heilsu og þroska í hættu, eða um 17,5% á fyrsta ársfjórðungi ársins 2024 miðað við sama tímabil árið á undan en 66,5% ef miðað er við sama tímabil ársins 2022.

Tilkynningum fjölgar frá lögreglu og nágrönnum
Flestar tilkynningar bárust frá lögreglu, eða 40,4% allra tilkynninga á fyrstu þremur mánuðum ársins 2024 og hefur þeim fjölgað töluvert miðað við árin á undan. Tilkynningar fóru úr 1.234 í 1.802 sem nemur 46% aukningu á milli ára. Aftur á móti fjölgaði hlutfallslega mest tilkynningum frá nágrönnum, 95,1%, ef bornar eru saman tölur fyrsta ársfjórðungs áranna 2024 og 2023, en slíkar tilkynningar fóru úr 103 í 201.

Samanlagður fjöldi barna sem tilkynnt var um á fyrstu þremur mánuðum ársins 20224 var 3.329 börn en sambærilegur fjöldi fyrir árið á undan var 2.929 börn. Þess ber að geta að tölur um fjölda barna sem tilkynnt var um eru fengnar þannig að fjöldi barna sem tilkynnt var um í hverjum mánuði fyrir sig er lagður saman. Tilkynningar geta borist um sama barnið á milli mánaða, þannig að hér er ekki alltaf um að ræða fjölda einstaklinga yfir ákveðið tímabil heldur samanlagðan heildarfjölda barna í hverjum mánuði fyrir sig.

Hér er hægt að skoða nánar skýrslu sem ber saman fyrstu 3 mánuði áranna 2022, 2023 og 2024


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-17

05. sep. 2024 : Við erum að flytja vefinn okkar

Við erum smám saman að flytja vefinn okkar yfir á island.is og þar er að finna það helsta sem er á döfinni hjá okkur og allar nýjustu upplýsingar.  Fara á nýjan vef.

27. ágú. 2024 : Börn á Flótta – Málþing

UNICEF á Íslandi, Rauði krossinn á Íslandi og Barna- og fjölskyldustofa (BOFS) hafa í samstarfi unnið fræðslumyndband um börn á flótta.

Fræðsluefnið um börn á flótta. Smellið hér til að nálgast fræðsluna

Lesa meira

15. maí 2024 : Stöðuskýrsla til ráðherra á þriðja ári innleiðingar

Frá því að lögin um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna voru samþykkt hefur markvisst verið unnið að innleiðingu þeirra á vegum ríkis og sveitarfélaga um allt land.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica